Nýr samstarfssamningur Grindavíkurbæjar og UMFG til 2018

Ungmennafélag GrindavíkurUMFG

Bæjarstjórn hefur samþykkt nýjan samstarfssamning við UMFG sem gildir til 31.12.2018 og leysir eldri samninga af hólmi. Búið er að sameina þrjá mismunandi samninga við UMFG í einn og bæta við afnotum af nýju íþróttamannvirki. 

Á þessum fjórum árum styrkir Grindavíkurbær starfsemi UMFG um rúmar 134 milljónir króna sem fer til að efla barna- og unglingastarf, til ráðningar á íþróttafulltrúa í hlutastarf, til afreksstarfs, til starfsemi aðalstjórnar og þá er sérstakur unglingastyrkur fyrir aldurinn 16-19 ár. Við þetta bætist reiknaður styrkur vegna afnota á húsnæði í nýju íþróttamannvirki og af íþróttamannvirkjum bæjarins.

Fyrirkomulag æfingagjalda fyrir börn og unglinga verður óbreytt og því getur þessi aldurshópur æft allar íþróttagreinar sem í boði eru á vegum UMFG en greiðir einungis eitt hóflegt æfingagjald. Styrkur Grindavíkurbæjar við barna- og unglingastarfið gerir þetta kleift.

Þessi samningur kemur í kjölfar Íþróttastefnu Grindavíkur sem samþykkt var fyrr í vor þar sem m.a. kom fram að stefnt skyldi að því að einfalda samningagerð við íþróttahreyfinguna. 

Frístunda- og menningarnefnd ásamt sviðsstjóra sáu um samningagerðina fyrir hönd Grindavíkurbæjar og stjórn UMFG skipaði sérstaka viðræðunefnd fyrir sína hönd.

Þá eru nýir samstarfssamningar við Golfklúbb Grindavíkur og Hestamannafélagið Brimfaxa í vinnslu.

Skrifað verður undir samningana með formlegum hætti þegar þeir verða allir formlega samþykktir af bæjarstjórn.