Skráning á leikjanámskeið UMFG 2020

Ungmennafélag GrindavíkurUMFG

Börnum í 1. – 3. bekk, fæddum 2011, 2012 og 2013 stendur til boða að sækja námskeið á vegum Ungmennafélags Grindavíkur í sumar. Um er að ræða svokölluð leikjanámskeið þar sem lögð er áhersla á fjölbreytni í leik og fræðslu. Á leikjanámskeiðunum er boðið upp á íþróttir, leiki, listir og fullt af skemmtilegum uppákomum sem tengjast mannlífinu í Grindavík. Farið verður í vettvangsferðir, sund og ótal margt fleira.

Námskeið verða fyrir og eftir hádegi frá mánudegi til fimmtudags.

Athugið að eingöngu er boðið upp á pláss hálfan daginn. Hámarksfjöldi barna á hverju námskeiði er 35 börn fyrir hádegi og 35 börn eftir hádegi, samtals 70 á dag. Staðfesting á skráningu á leikjanámskeið berst á næstu dögum. Börn sem ekki fá pláss á leikjanámskeiðinu fara á biðlista. Hægt er að skrá barn á öll námskeiðin.

Hægt er að kaupa daggæslu milli kl. 8:00 og 9:00 áður en leikjanámskeiðin hefjast.

Gjaldskrá fyrir leikjanámskeið sumarið 2019 er eftirfarandi:
Eitt leikjanámskeið 5.000 kr.-
Tvö leikjanámskeið 9.000 kr.-
Systkinaafsláttur 25%
Daggæsla milli 8:00 og 9:00: 2.750 kr.

ATH. Ekki er hægt að skrá barn á tvö námskeið í sömu viku, þ.e. fyrir og eftir hádegi.

UMFG áskilur sér rétt til að fella niður námskeið verði ekki nægileg skráning á námskeið.

Eftirfarandi námskeið eru í boði sumarið 2020:

Námskeið 1: 8.-11. júní, kl. 9:00 – 12:00 (4 dagar)
Námskeið 2: 8.-11. júní kl. 13:00 – 16:00 (4 dagar)
Námskeið 3: 15. – 19. júní kl. 9:00 – 12:00 (4 dagar) *Frí 17. júní og föstudagur bætist við.
Námskeið 4: 15. – 19. júní kl. 13:00 – 16:00 (4 dagar) *Frí 17. júní og föstudagur bætist við.
Námskeið 5: 22. – 25. júní kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 6: 22.-25. júní kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 7: 29. júní – 2. júlí kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 8: 29. júní – 2. júlí kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 9: 6. – 9. júlí kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 10: : 6. – 9. júlí kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 11: 13. – 16. júlí kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 12: 13. – 16. júlí kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 13: 27. – 30. júlí kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 14: 27. – 30. júlí kl. 13:00-16:00 (4 dagar)
Námskeið 15: 4. – 7. ágúst kl. 9:00-12:00 (4 dagar) * Námskeið hefst á þriðjudegi
Námskeið 16: 4. – 7. ágúst kl. 13:00-16:00 (4 dagar) * Námskeið hefst á þriðjudegi
Námskeið 17: 10. – 13. ágúst kl. 9:00-12:00 (4 dagar)
Námskeið 18: 10. – 13. ágúst kl. 13:00-16:00 (4 dagar)

Skráning fer fram hér að neðan.