Um félagið

Ungmennafélag Grindavíkur var stofnað árið 1935. Á síðustu árum hefur félagið náð góðum árangri í körfuknattleik og knattspyrnu og var um tíma með meistaraflokka hjá báðum kynjum í þessum íþróttagreinum í efstu deild. Grindavík hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari karla í körfuknattleik og einu sinni hjá konum. Grindavík hefur einnig margoft orðið bikarmeistari í körfuknattleik.

Grindavík hefur átt lið í efstu deild í knattspyrnu á síðustu þremur áratugum hefur fest sig í sessi meðal bestu félaga landsins í knattspyrnu. UMFG hefur einnig átt marga frábæra íþróttamenn úr Júdó, Taekwondo og nú nýlega í pílukasti.

UMFG státaði sig um árabil með stolti af lægstu æfingagjöldum á landinu.

Skrifstofa UMFG er staðsett í íþróttamiðstöðinni í Grindavík en engin viðvera er á skrifstofunni eins og sakir standa.

Tölvupóstfang er : umfg@umfg.is