Klukkan 18:00 fer fram aðalfundur knattspyrnudeildarinnar í félagsheimili knattspyrnudeildar að Austurvegi 3 (Gulahúsinu) Dagskrá : Venjuleg aðalfundarstörf. Iðkendur, foreldrar, velunnarar og aðrir áhugamenn um knattspyrnu eru hvattir til að mæta. Stjórn knattspyrnudeildar UMFG.
Sænskur markvörður til Grindavíkur
Meistaraflokkur kvenna heldur áfram að bæta við sig erlendum landsliðskonum fyrir komandi sumar í Pepsi-deildinni en fótbolti.net greinir frá því í dag að hin sænska Martin Reuterwall sé gengin til liðs við Grindavík. Martin er 26 ára markvörður frá Svíþjóð og hefur leikið einn landsleik. Hin norður-írska Emma Higgins framlengdi sinn samning við Grindavík í desember og því ljóst að …
Myndir frá grímutöltmótinu
Síðastliðinn laugardag stóð hestamannafélagið Brimfaxi fyrir stórskemmtilegu töltmóti í samvinnu við hestamannafélagið Sóta frá Álftanesi. Um svokallað grímutöltmót var að ræða þar sem knapar, og jafnvel hestar, mættu til leiks í skrautlegum búningum. Búningarnir voru hver öðrum glæsilegri en á Facebook-síðu Sóta má sjá fjölmargar skemmtilegar myndir frá mótinu. Við birtum smá sýnishorn hér að neðan:
Stelpurnar leita enn að fyrsta sigri ársins
Grindavíkurkonur leita enn að fyrsta sigri ársins eftir tap gegn Haukum hér í Grindavík á laugardaginn. Leikurinn var jafn allt til enda en staðan var 40-40 í upphafi 4. leikhluta. Haukakonur sigu svo fram úr á lokasprettinum, lokatölur 52-56. Grindavík er enn án erlends leikmanns en Angela Rodriguez bíður eftir að fá atvinnuleyfi. Nú fer hver að verða síðastur að …
Keflvíkingar stálu stigum í Mustad-höllinni
Grindavík náði ekki að loka nágrannaslagshelginni á sömu nótum og hún hófst, en Keflavík tók stigin í Mustad-höllinni í gær. Leikurinn var jafn framan af en Keflavík með Amin Stevens í broddi fylkingar var sterkari á lokasprettinum og kláraði leikinn, 85-92. Grindavík er því í 5. sæti Domino’s deildar karla, aðeins 2 stigum á undan Keflavík. Karfan.is fjallaði um leikinn: …
Grindavík vann grannaslaginn í Ljónagryfjunni
Grindavík vann góðan sigur á nágrönnum okkar í Njarðvík í gærkvöldi, 79-87. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en Grindavík tók gott áhlaup í lokin sem að Lewis Clinch leiddi og uppskar að launum dýrmætan sigur. Lewis tók tvær rosalegar troðslur á lokasprettinum og hélt Fannar Ólafsson ekki vatni yfir þeim í Körfuboltakvöldi á Stöð 2 sport. Karfan.is fjallaði …
Stelpurnar grátlega nálægt sigri í spennuleik
Grindavíkurkonur voru hársbreidd frá því að landa sínum fyrsta sigri á nýju ári þegar þær tóku á móti Stjörnunni í fyrrakvöld. Liðið hefur gengið í gegnum ýmsar hrakningar í vetur og ekki náð að sýna sitt rétta andlit en allt annað lið virtist vera mætt til leiks á miðvikudaginn. Stjarnan fór að lokum með sigur af hólmi 71-74. Karfan.is fjallaði …
Flugukastæfingar í Hópinu
Næstu þrjá sunnudag vera flugukastæfingar í Hópinu 18:30. Leiðbeinendur verða þeir Sveinn Eyfjörð og Andrew Horne. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Grindavík prúðasta lið Inkasso-deildarinnar 2016
Á nýliðnu ársþingi KSÍ sem haldið var í Vestmannaeyjum fékk Grindavík Drago styttu en stytturnar hljóta þau lið í efstu tveimur deildum karla, sem sýna prúðmannlegastan leik miðað við gul og rauð spjöld dómaranna. Þessi viðurkenning er skemmtileg rós í hnappagat liðsins og góður lokapunktur hið frábæra sumar sem liðið átti í fyrra. Mynd: Víkurfréttir
Aðalfundur knattspyrnudeildar UMFG
Aðalfundur knattspyrnudeildar UMFG verður haldinn fimmtudaginn 23. febrúar 2017. Kl: 18:00 í félagsheimili knattspyrnudeildar að Austurvegi 3 (Gulahúsinu) Dagskrá : Venjuleg aðalfundarstörf. Iðkendur, foreldrar, velunnarar og aðrir áhugamenn um knattspyrnu eru hvattir til að mæta. Stjórn knattspyrnudeildar UMFG.