Pílufélag Grindavíkur, PG, varð í gærkvöld fyrst félaga til að tryggja sér Íslandsmeistatitil félagsliða í pílukasti er liðið lagði Pílukastfélag Reykjavíkur, PFR, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Keppt var í bæði tvímenningi og einmenningi. Sigra þarf tvo af þrem leggjum í tvímenningi til að tryggja liðinu eitt stig og svo þurfti að sigra níu af 17 leggjum í einmenningi þar sem tvö stig voru í boði.
Grindvíkingar unnu fyrstu viðureignina í tvímenningi örugglega 2-0, en PFR jafnaði metin með 2-1 sigri í annarri viðureigninni.
Mikið jafnræði var með liðunum í fyrstu viðureignum einmenningskeppninnar, og að fjórum þeirra loknum höfðu liðin unnið tvo hvor. Þá tóku Grindvíkingar við sér og unnu þrjá af næstu fjórum viðureignum og komust í 5-3.
PFR minnkaði muninn í 5-4, en Grindvíkingar unnu næstu fjórar viðureignir og tryggðu sér 9-4 sigur í einmenningskeppninni, og þar með 3-1 sigur í heildaviðureign kvöldsins.
Fyrsti Íslandsmeistaratitill félagsliða fer því í mekka pílunnar á Íslandi, Grindavík.
Það var Hörður Þór Gunnarsson sem tryggði Grindvíkingum sigurinn með því að taka út 111.
„Bara mjög góð tilfinning,“ sagði Hörður Þór í samtali við Stöð 2 sport eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn. „Maður dettur í þetta zone og þetta tókst. Bikarinn er kominn heim. Mekka pílunnar, Grindavík.“