Matthías Örn Friðriksson úr Pílufélagi Grindavíkur varð á laugardaginn Íslandsmeistari í pílukasti en um helgina fór fram Íslandsmótið í 501 sem er algengasti leikur pílukastsins. Matthías Örn átti frábæran dag og var úrslitaviðureign hans við sitjandi Íslandsmeistara, Vitor Charrua. Úrslitaviðureignin var æsispennandi en svo fór að Matthías vann 7-6.
Matthías Örn var tilnefndur í kjöri á Íþróttamanni Grindavíkur fyrir árið 2019. Hann gerði góða hluti í pílukasti á síðasta ári og ljóst að þetta ár ætlar ekki að vera síðra.
Við óskum Matthíasi Erni innilega til hamingju með titilinn og áframhaldandi góðs gengis.
Mynd: Pílufélag Grindavíkur