Nýjung hjá UMFG: Sameiginlegar þrekæfingar allra deilda fyrir 5.-10. bekk

Skotdeild Fimleikar, Judó, Knattspyrna, Körfubolti, Skotdeild, Sund, Taekwondo, UMFG

Athygli er vakin á sameiginlegum þrekæfingum allra deilda UMFG í vetur fyrir 5.-10. bekk, tvisvar í viku. Deildirnar munu skiptast á að sjá um þrekæfingarnar en þær hefjast miðvikudaginn 2. september og fara fram í litla salnum (gamla anddyrinu) í íþróttahúsinu. Iðkendur eru hvattir til að nýta sér þessa viðbót við æfingaflóruna. Æfingarnar eru sem hér segir:

Mánudagar
5.-7. bekkur kl. 15:00-15:40
8.-10. bekkur kl. 15:40-16:20

Miðvikudagar
5.-7. bekkur kl. 15:00-15:40
8.-10. bekkur kl. 15:40-16:20 

 Æfingatafla UMFG 2015-2016 (PDF, útgáfa 0,4) – allar deildir nema knattspyrudeild.