Æfingagjöld 2015

Ungmennafélag Grindavíkur Fimleikar, Judó, Knattspyrna, Körfubolti, Sund, Taekwondo, UMFG

Ákveðið hefur verið á fundi aðalstjórnar UMFG með forráðamönnum deilda að greiðsluseðlar verða sendir í heimabanka foreldra/forráðamanna í byrjun mars 2015 fyrir æfingagjöldum barna og unglinga sem æfa íþróttir innan deilda UMFG og verður greiðslan fyrir jan-júní 2015 að upphæð 13.000.- kr

Ef að foreldri/forráðamenn vilja breyta skráningum á greiðsluseðlum eða kjósa að greiða með greiðslukort eða jafnvel skipta greiðslum þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu UMFG
í tölvupóst umfg@umfg.is og starfsmaður skrifstofu mun hafa samband og breyta greiðslufyrirkomulagi.

starfsmaður er við á skrifstofutíma á mánudögum og fimmtudögum á milli 14:00-18:00

f.h UMFG
Hadda Guðfinns