Zeba áfram með Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Knattspyrna

Josip Zeba skrifaði í gær undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Grindavíkur.  Zeba, eins og flestir vilja kalla hann, var hluti af mjög sterkri vörn Grindavíkur á ný afstöðnu tímabili í Pepsi deildinni. Það er ósennilegt að það sé hægt að finna lið í flestum, ef ekki öllum deildum heims sem fær á sig næst fæstu mörkin í deildinni en falla samt niður um deild en það var jú hlutskipti okkar þetta ár. Það er því ljúft fyrir okkur að tryggja okkur samning við þennan sterka varnarmann næstu þrjú árin. Segir í tilkynningu frá Knattspyrnudeildinni.