Vladan Djogatovic áfram með Grindavík

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur gert 2ja ára samning við serbneska markvörðinn Vladan Djogatovic er deildin greindi frá þessu á Facebook síðu sinni nú rétt í þessu. Þar kemur fram að Vladan hafi vakið verðskuldaða athyglu á síðasta tímabili fyrir góðar markvörslur. Auk þess var Vladan kjörinn besti leikmaður Grindavíkur tímabilsins á lokahófinu í september sl. 

“Vladan hefur sagt okkur að honum líði sérstaklega vel hérna hjá okkur í Grindavík og hrósar mikið fólkinu okkar, hversu almennilegt fólk búi hér í okkar samfélagi. Þið megið því eigna ykkur það að hluta kæru Grindvíkingar að hann hafi viljað vera hér áfram 🙂

Kveðja,
Stjórnin”