Viðurkenning fyrir frumlegar auglýsingar

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Á kjöri íþróttamanns og íþróttakonu ársins í Grindavík á gamlársdag fékk kvennalið Grindavíkur í knattspyrnu viðurkenningu fyrir frumlegar og skemmtilegar auglýsingar á heimaleikjum liðsins í sumar.

Það má nefnilega ekki vanrækja að markaðssetja leiki og íþróttaviðburði hér í bænum. Stelpurnar í Grindavíkurliðinu eru frumlegar og skemmtilegar og hönnuðu sínar eigin auglýsingar þar sem skemmtanagildið var haft að leiðarljósi. Þetta sló í gegn, auglýsingarnar voru hnitmiðaðar og skemmtilegar og vöktu mikla athygl enda var aðsókn á leikjum í sumar góð.

Á myndinni eru fulltrúar kvennaliðsins þær Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Margrét Albertsdóttir og Þórkatla Albertsdóttir.

Hér má sjá nokkur dæmi um auglýsingar kvennaliðsins: