Í Morgunblaðinu í dag er nokkuð ítarlegt viðtal við körfuknattleiksmanninn unga, Jón Axel Guðmundsson, en hann hélt í víking í haust til Bandaríkjanna þar sem hann mun leika körfubolta með Davidson-skólanum. Skólinn er einn af sterkustu skólunum í háskólaboltanum vestra og ljóst að spennandi tímar eru framundan hjá Jóni. Jón er spenntur fyrir vetrinum og þeirri áskorun að spila fyrir einn af bestu skólunum en NBA stjarnan Stephen Curry lék með skólanum á sínum tíma.
Í sporum Stephen Curry
Jón Axel Guðmundsson, einn þeirra leikmanna sem sló í gegn með U-20 ára landsliðinu í körfubolta á EM í sumar, er að koma sér fyrir í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum þar sem hann tekst á við krefjandi verkefni. Jón er á samningi hjá einu sterkasta háskólaliði sem Íslendingur hefur komist í en þar er um að ræða Davidson-skólann sem sjálfur Stephen Curry lék með á sínum tíma.
„Ég kom hingað út 17. ágúst og mér líst mjög vel á. Dvölin hefur verið enn betri en ég átti von á,” sagði Jón Axel og segir umgjörðina í kringum körfuboltaliðið vera eins og best verður á kosið. „Umgjörðin, hvernig komið er fram við leikmennina, æfingarnar og styrktaræfingar er allt í hæsta gæðaflokki. Ég er mjög glaður hérna.”
Þegar um er að ræða sterk lið í háskólaboltanum þá er fremur sjaldgæft að nýliðar fái að spila á sínu fyrsta ári. Smám saman eru menn teknir inn og fá svo alla jafna stór hlutverk á þriðja og fjórða ári. Alla vega hjá bestu liðunum. Jón tekur því vissa áhættu með því að fara til liðs sem er talið vera á meðal 25 bestu liða í Bandaríkjunum. „Ég tel þetta vera algerlega undir mér komið. Möguleikarnir eru til staðar ef ég stend mig. Þjálfarinn, Bob McKillop, er einn sá besti í sögu háskólaboltans og hann hefur ekki sagt annað en að ég standi mig vel. Auðvitað er margt sem maður þarf að læra á fáum vikum áður en tímabilið hefst. Ég þarf að reyna að læra sem mest á stuttum tíma en í framhaldinu verður þetta spurning um hversu mikið ég er tilbúinn til að leggja á mig til að fá mínútur inni á vellinum.”