Verður skák og mát

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

„Mín ósk er að einvígið fari í oddaleik og þetta verði rafmagnaðir leikir. Það eru það mikil gæði í báðum liðum að ég hugsa að þetta verði bara skák og mát,” segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, við Vísi í dag. Hann er klár á því að tvö bestu lið landsins leiði saman hesta sína í úrslitum.

„Ef þú skoðar viðureignir liðanna eftir áramót hefur Stjarnan greinilega verið sterkara liðið,” segir Ingi Þór og rifjar upp bikarúrslitaleik liðanna í febrúar.

„Stjarnan leysti þann leik mjög vel og verður fróðlegt að sjá hvernig Grindavík bregst við leikaðferð Stjörnunnar. Það er klárt mál að Stjarnan mun nota sömu aðferðafræði og varnarleik og hún gerði í Laugardalshöll.”

Ingi Þór segir mikilvægt fyrir Grindvíkinga að fá skotin hjá Samuel Zeglinski í gang.
„Hann er mikil skytta og þarf að ná upp sínum leik. Broussard gekk mjög illa gegn Frye í bikarúrslitaleiknum. Hann er örugglega klár í að gera betur,” segir Ingi. Hann er þó á því að mestu skipti hvernig Jóhann Árni Ólafsson og Þorleifur Ólafsson spili.

„Stóri faktorinn er sá að Jói og Lalli (innsk.: Þorleifur) séu í takti og spili sína bestu leiki,” segir Ingi. Auk þess þurfi Sigurður Þorsteinsson að láta Brian Mills og Fannar Helgason hafa fyrir hlutunum undir körfunni.

Þjálfari Snæfellinga þarf ekki að velta lengi fyrir sér hver sé lykilmaður Garðbæinga.
„Justin Shouse er algjör lykilmaður. En þegar Justin hefur ekki fundið sig hefur Jarrid Frye verið maðurinn. Stjarnan er í veislu með þessa tvo sem eru algjörir lyklar að velgengni liðsins,” segir Ingi Þór.

Þjálfarar liðanna, þeir Sverrir Þór Sverrisson og Teitur Örlygsson, hafa marga fjöruna sopið.

„Þeir eru báðir gríðarlegir keppnismenn og voru frábærir leikmenn á sínum tíma. Ólíkir leikmenn en báðir klókir og baráttumiklir. Lið þeirra smitast af því,” segir Ingi. Hann á erfitt með að spá fyrir um sigurvegara.

„Ég vona að þetta fari í oddaleik og hef trú á því að það lið sem vinni á útivelli verði Íslandsmeistari.”