Valsmenn kalla Anton Ara til baka úr láni

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindvíkingar hafa orðið fyrir blóðtöku í Inkasso deildinni en markvörður liðsins, Anton Ari Einarsson, var í gær kallaður til baka úr láni af Valsmönnum vegna meiðsla Ingvars Kale. Hinn 19 ára Anton Ingi Jóhannsson mun því væntanlega verja mark Grindavíkur í kvöld í bikarleiknum gegn Erninum. Eins og kunnugt er þá er aðalmarkvörður liðsins, Maciej Majewski, með slitna hásin og verður að öllum líkindum frá keppni út sumarið.

Fótbolti.net greindi frá:

Valsmenn hafa kallað markvörðinn Anton Ara Einarsson til baka úr láni frá Grindavík vegna meiðsla Ingvars Kale.

Valur hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í Pepsi-deildinni og hefur Ingvar fengið töluverða gagnrýni fyrir sína frammistöðu. Hann fór svo meiddur af velli gegn Víkingi Ólafsvík í gær.

Ljóst er að Ingvar spilar ekki næstu leiki Vals vegna þessara meiðsla.

Anton Ari, sem er fæddur 1994, lék fjóra leiki með Val í Pepsi-deildinni í fyrra en var lánaður til Grindavíkur fyrir þetta tímabil til að gefa honum leiki. Hann varði mark liðsins í 3-2 sigri gegn Haukum í fyrstu umferð Inkasso-deildarinnar. Það er skellur fyrir Grindvíkinga að missa Anton og ljóst að liðið þarf að finna nýjan markvörð í snatri.

Valur mætir Fylki á fimmtudaginn á Hlíðarenda og mun Anton Ari standa í rammanum í þeim leik.