Grindvíkingar hefja leik í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla í kvöld. Grindavík mætir Tindastóli og fara á erfiðan útivöll á Sauðárkróki en þangað þurfa þeir að sækja í það minnsta einn sigur ef þeir ætla sér áfram.Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður í beinni útsendingu á Tindastóll TV fyrir þá sem komast ekki í Skagafjörðinn í kvöld.
Karfan.is tók fyrirliða Grindavíkur, Þorstein Finnbogason, sem stuðningsmenn þekkja kannski betur undir nafninu Togarinn, í viðtal en Þorsteinn er spenntur fyrir viðureigninni og hlakkar til að heimsækja Síkið á Króknum.