Grindavík sækir KR heim í fyrsta leik liðanna í úrslitum Domino’s deildar karla í kvöld. Leikurinn hefst kl. 18:15 svo að Grindvíkingar eru hvattir til að mæta tímanlega í DHL höllina og styðja okkar menn til sigurs. Allir spekingar landsins hafa ítrekað afskrifað Grindavík í vetur en liðið hefur stungið hverjum sokknum á fætur öðrum upp í gagnrýnendur. Nú er komið að úrslitastundinni og við stöndum þétt við bakið á okkar mönnum.
Áfram Grindavík!