Næstkomandi miðvikudag munu þrjár knattspyrnukonur deila reynslu sinni af því að hljóta heilahristing og heilaáverka í fótbolta. Tvær þeirra eru Grindvíkingarnir Ólína Viðarsdóttir og Sara Hrund Helgadóttir.
Viðburðurinn hefst kl. 19 á miðvikudaginn nk. 31. janúar og verður í húsakynnum Hugarfars að Sigtúni 42.
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Fyrirlesturinn verður einnig í beinni útsendingu á Facebook.