Uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Knattspyrna

Uppskeruhátíð yngri flokka, 5., 6., 7. og 8. flokks karla og kvenna verður haldin miðvikudaginn 7. september kl. 16:00-17:00 í Hópinu. 

Dagskrá:

– Viðurkenningar afhentar
– Unglingaráð grillar fyrir gesti
– Meistaraflokksleikmenn koma og sýna knattþrautir.

Foreldrar sérstaklega velkomnir.

Svo fjölmennum við yfir á aðalvöllinn þar sem meistaraflokksstelpurnar keppa í úrslitakeppni 1. deildar á móti Víkingi frá Ólafsvík kl. 17:15 – Frítt á völlinn.