Unglingadómaranámskeið hjá knattspyrnudeild UMFG

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Knattspyrnudeild UMFG í samvinnu við KSÍ mun standa fyrir unglingadómaranámskeiði þann 17.febrúar, kl. 19.30 í Gulahúsi. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem verða 15 ára á almanaksárinu og eldri.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.

Námskeiðið er ókeypis.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Skráning er hafin á aegir@umfg.is