Tilnefningar til íþróttamanns og íþróttakonu ársins 2013

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Kjöri á íþróttmanni og íþróttakonu Grindvíkur verður að venju lýst á gamlársdag. Hófið fer fram í Hópsskóla og hefst kl. 13:00. Kjörið er öllum opið og Grindvíkingar hvattir til þess að fagna glæsilegu íþróttaári með íþróttafólki okkar. Eftirtaldir einstaklingar eru í kjöri í ár, 2013. Nöfnin birtast í stafrófsröð: 

Íþróttamaður Grindvíkur:

  • Björn Lúkas Haraldsson – Tilnefndur af júdódeild og taekwondódeild UMFG
  • Davíð Arthur Friðriksson – Tilnefndur af Golfklúbbi Grindavíkur
  • Eggert Daði Pálsson – Tilnefndur af ÍG
  • Jóhann Árni Ólafsson – Tilnefndur af körfuknattleiksdeild UMFG
  • Jóhann Helgason – Tilnefndur af knattspyrnudeild UMFG
  • Jósef Kristinn Jósefsson – Tilnefndur af knattspyrnudeild UMFG
  • Sigurður Gunnar Þorsteinsson – Tilnefndur af körfuknattleiksdeild UMFG

Íþróttakona Grindavíkur:

  • Anna Þórunn Guðmundsdóttir – Tilnefnd af knattspyrnudeild UMFG
  • Gerða Kristín Hammer – Tilnefnd af Golfklúbbi Grindavíkur
  • Helga Rut Hallgrímsdóttir – Tilnefnd af körfuknattleiksdeild UMFG
  • Margrét Albertsdóttir – Tilnefnd af knattspyrnudeild UMFG
  • Petrúnella Skúladóttir – Tilnefnd af körfuknattleiksdeild UMFG
  • Ylfa Rán Erlendsdóttir – Tilnefnd af taekwondódeild UMFG

Mynd:  Christine Buchholz og Björn Lúkas Haraldsson íþróttakona og íþróttamaður ársins 2012 í Grindavík.