Kjöri á íþróttmanni og íþróttakonu Grindvíkur verður að venju lýst á gamlársdag. Hófið fer fram í Hópsskóla og hefst kl. 13:00. Kjörið er öllum opið og Grindvíkingar hvattir til þess að fagna glæsilegu íþróttaári með íþróttafólki okkar. Eftirtaldir einstaklingar eru í kjöri í ár, 2013. Nöfnin birtast í stafrófsröð:
Íþróttamaður Grindvíkur:
- Björn Lúkas Haraldsson – Tilnefndur af júdódeild og taekwondódeild UMFG
- Davíð Arthur Friðriksson – Tilnefndur af Golfklúbbi Grindavíkur
- Eggert Daði Pálsson – Tilnefndur af ÍG
- Jóhann Árni Ólafsson – Tilnefndur af körfuknattleiksdeild UMFG
- Jóhann Helgason – Tilnefndur af knattspyrnudeild UMFG
- Jósef Kristinn Jósefsson – Tilnefndur af knattspyrnudeild UMFG
- Sigurður Gunnar Þorsteinsson – Tilnefndur af körfuknattleiksdeild UMFG
Íþróttakona Grindavíkur:
- Anna Þórunn Guðmundsdóttir – Tilnefnd af knattspyrnudeild UMFG
- Gerða Kristín Hammer – Tilnefnd af Golfklúbbi Grindavíkur
- Helga Rut Hallgrímsdóttir – Tilnefnd af körfuknattleiksdeild UMFG
- Margrét Albertsdóttir – Tilnefnd af knattspyrnudeild UMFG
- Petrúnella Skúladóttir – Tilnefnd af körfuknattleiksdeild UMFG
- Ylfa Rán Erlendsdóttir – Tilnefnd af taekwondódeild UMFG
Mynd: Christine Buchholz og Björn Lúkas Haraldsson íþróttakona og íþróttamaður ársins 2012 í Grindavík.