Þrenn verðlaun

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindvíkingar hafa gert það gott að undanförnu á Íslandsmótum í júdó en þrír unnu til verðlauna, eitt gull og tvenn silfur.

Íslandsmeistaramót fullorðinna í júdó fór fram á dögunum og keppti þar Sigurpáll Albertsson frá Grindavík og vann þar til bronsverðlauna.

Sigurpáll keppti í -100 kg flokki og voru þar sex keppendur sem skipt var í tvo riðla. Sigurpáll vann sína fyrstu glímu en tapaði annarri gegn sigurvegara flokksins. Hann komst þó upp úr riðlinum og keppti undanúrslitaglímu þar sem hann var yfir á stigum þar til á lokasekúndunum þegar andstæðingur hans kastaði honum. Hann hafnaði því í 3. sæti

Þá fór fram Íslandsmót U21 árs og kepptu þar þeir Björn Lúkas Haraldsson og Guðjón Sveinsson. Björn Lúkas varð Íslandsmeistari þriðja árið í röð og vann Guðjón til bronsverðlauna.

Björn Lúkas keppti í -81 kg flokki 18-20 ára. Þar voru þrír þátttakendur og kepptu þeir allir innbyrðis. Lúkas vann fyrri glímuna sína á armlás og þá seinni á hengingu og tryggði sér þannig titilinn.

Guðjón keppti í -73 kg flokki 18-20 ára. Þar voru sex þátttakendur og var þeim skipt í tvo riðla. Guðjón vann fyrstu glímuna sína á armlás, en tapaði annarri á kasti. Hann komst þó upp úr riðlinum en tapaði gegn sigurvegara flokksins á kasti og endaði því í 3. sæti.

Efsta mynd: Björn Lúkas efstur á palli.

Sigurpáll á palli (þriðji frá vinstri).

Guðjón á palli (lengst til hægri).