Tap í Laugardalnum og Pepsideildardraumurinn kvaddur

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavík sótti Þrótt heim í Laugardalinn um helgina þar sem ekkert nema sigur kom til greina ef liðið ætlaði að halda Pepsideildardraumnum lifandi. Þróttarar voru fyrir leikinn í 2. sæti og höfðu unnið alla sína heimaleiki í sumar og því ljóst að Grindvíkingar þyrftu að tjalda öllu til ef þeir ætluðu sér að vinna leikinn. Grindvíkingar voru líklegir til að skora í fyrri hálfleik en staðan var markalaus í hálfleik.

Víkufréttir fjölluðu um leikinn:

„Leikurinn byrjaði nokkuð jafnt og skiptust liðin á færum í fyrri hálfleik en ekki vildi boltinn finna netmöskvana. Annað var uppi á teningnum í seinni hálfleik sem var algjörlega eign Þróttara og skoruðu þeir verðskuldað mark á 61. mínútu. 5 mínútum seinna tvöfölduðu þeir forustuna með glæsimarki Omars Koroma. Heimamenn fengu rautt spjald á 81. mínútu en það hjálpaði Grindvíkingum lítið sem ekkert. Lokatölur urðu því 2-0 fyrir Þrótti sem styrktu því stöðu sína í öðru sæti. Grindvíkingar eru áfram í því sjötta og eru nú 12 stigum á eftir Þrótturum þegar 18 stig eru eftir í pottinum og verður kraftaverk að eiga sér stað til þess að Grindvíkingar vinni sér sæti meðal þeirra bestu að ári.“

Grindvíkingar hafa þó ekki lagt árar í bát og Ásgeir Þór Ingólfsson fyrirliði lét hafa þetta eftir sér eftir leikinn:

„Við höldum áfram að sjálfsögðu. Við vorum að mæta gríðarlega sterku liði sem hefur ekki enn tapað á heimavelli og það þýðir ekkert að hætta núna. Við ætlum að halda áfram að safna í pokann og enda í topp fjórum.”

Næsti leikur Grindavíkur er núna á morgun, heimaleikur gegn botnliði BÍ/Bolungarvík. Leikurinn hefst kl. 18:30.

Mynd: Fótbolti.net