Tækniæfingar í Hópinu á miðvikudagsmorgnum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Knattspyrnuakademía UMFG ætlar að bjóða upp á tækniæfingar fyrir iðkendur í 4. og 3.flokki drengja og stúlkna næstu miðvikudagamorgna frá kl.6.10 – 7.00 í Hópinu.

Áhugasömum er frjálst að mæta til að auka leikfærni óháð leikstöðu og getu í knattspyrnu.