Stúkan verður gul í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Það verður væntanlega gjörsamlega rafmögnuð stemming í Mustad-höllinni í kvöld þegar Grindavík tekur á móti Stjörnunni í 4-liða úrslitum Domino’s deildar karla. Okkar menn tóku heimavallarréttinn af Stjörnumönnum með valdi í síðasta leik og ætla sér að halda uppteknum hætti í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19:15 en grillin verða heit uppúr fimm og borgararnir klárir 17:30. Á síðasta leik myndaðist virkilega góð stemming en við ætlum að toppa hana í kvöld og fylla húsið af gulum og glöðum stuðningsmönnum!