Stuðningsmannafundur með Óla Stefáni á Bryggjunni í kvöld

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Knattspyrna

Óli Stefán Flóventsson, þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu, býður stuðningsmönnum til skrafs og ráðagerða á Bryggjunni í kvöld, fimmtudag, kl. 21:00. Óli ætlar að fara yfir komandi sumar, Pepsi-deildina 2018 og áherslur okkar fyrir sumarið. 

Bryggjubræður bjóða uppá súpu og kaffi, en fundurinn verður á þriðju hæð Bryggjunnar, og hefst eins og áður sagði kl. 21:00.