Grindvíkingar hefja leik í Pepsi-deild karla á laugardaginn, en þeir mæta FH-ingum hér heima í Grindavík í fyrsta leik. Grindvíkingar voru að öðrum liðum ólöstuðum spútniklið deildarinnar í fyrra og enduðu í 5. sæti eftir mjög góða byrjun á tímabilinu. Síðan þá hefur markakóngur deildarinnar, Andri Rúnar Bjarnason, horfið á braut í atvinnumennsku, og hópurinn í heild minnkað, en liðið hefur misst 5 leikmenn en aðeins fengið til sín tvo nýja. Á móti kemur að nokkrir ungir og efnilegir leikmenn eru að koma upp úr yngri flokkum og spennandi að sjá hvort þeir nái að taka skrefið alla leið upp í meistaraflokk í sumar.
Sérfræðingar Fótbolta.net hafa spáð í spilin fyrir komandi sumar, en þeir setja Grindavík í 7. sæti.
Um liðið: Grindvíkingar voru spútnikliðið í Pepsi-deildinni í fyrra. Grindvíkingar komu af krafti upp úr Inkasso-deildinni og enduðu í 5. sæti eftir að hafa verið lengi í toppbaráttu.
Þjálfari – Óli Stefán Flóventsson Óli Stefán spilaði með Grindavík í áraraðir og er öllum hnútum kunnugur hjá félaginu. Eftir að hafa þjálfað Sindra á Höfn í Hornafirði í fimm ár þá kom Óli aftur til Grindavíkur sem aðstoðarþjálfari sumarið 2015. Um haustið tók Óli við sem aðalþjálfari og hann fór upp um deild á sínu fyrsta ári sem slíkur og náði frábærum árangri með liðið í fyrra. Síðastliðið haust var Óli Stefán nálægt því að hætta en hann ákvað síðan að halda áfram.
Halda Grindvíkingar áfram á flugi?
Styrkleikar: Leitun er að liði sem er jafn vel skipulagt og Grindavík. Varnarleikur liðsins er mjög öflugur en Grindavík fékk til að mynda einungis tvö mörk á sig í riðlakeppni Lengjubikarsins. Hópurinn er gríðarlega samheldinn og Óli Stefán hefur náð því besta fram hjá leikmönnum. Grindavík fór bæði í úrslit Fótbolta.net mótsins og Lengjubikarsins og spilamennska liðsins í vetur gefur liðinu sjálfstraust og góð fyrirheit fyrir sumarið.
Veikleikar: Hópurinn hjá Grindavík er ekki jafn breiður og hjá liðunum sem spáð er efstu sætunum og lítið má út af bregða í meiðslum og leikbönnum. Andri Rúnar Bjarnason skoraði 19 af 31 marki Grindavíkur í Pepsi-deildinni í fyrra og það verður hægara sagt en gert að fylla skarð hans. Grindvíkingar náðu ekki að halda stöðugleika til að blanda sér í toppbaráttuna í fyrra og liðið má ekki lenda í jafn djúpri lægð í sumar og það gerði síðari hlutann í fyrra.
Lykilmenn: Gunnar Þorsteinsson og Kristijan Jajalo. Gunnar er fyrirliði Grindvíkinga en hann hefur vaxið gríðarlega síðan hann kom til félagsins frá ÍBV. Jajalo var frábær á milli stanganna í fyrra. Einn allra besti markvörður deildarinnar.
Gaman að fylgjast með: Dagur Ingi Hammer Gunnarsson er 17 ára kant og sóknarmaður sem hefur fengið fullt af tækifærum í vetur. Efnilegur leikmaður með magnað nafn.
Spurningamerkið: Nær Grindavík að fylgja eftir árangrinum síðan í fyrra eða verður „second season syndrome” hjá liðinu eins og oft vill verða?
Völlurinn: Grindvíkingar eiga glæsilega stúku sem tekur 1450 áhorfendur. Grasið á vellinum sjálfum er síðan alltaf í toppstandi. Í Grindavík eru flottar aðstæður fyrir íþróttaiðkun og menn eru óhræddir við að stefna hátt.
„Fyrsta markmið að ná 22 stigum”
Þjálfarinn segir – Óli Stefán Flóventsson
„Ef við tökum mið af vetrinum kemur þetta kannski ekki á óvart. Ef við tökum mið af því að við höfum misst slatta af góðum leikmönnum og fengið minna í staðinn þá kemur þetta kannski á óvart. Við ætlum að vinna eftir þrepaskiptum markmiðum. Fyrsta markmið er alltaf að ná í eitt stig í leik og ná þessum 22 stigum. Þegar það er komið þá stefnum við á að gera betur en í fyrra. Við mætum í Pepsi-deildina af auðmýkt og virðingu og gerum okkur grein fyrir því að það getur brugðið til beggja vona.”
Komnir:
Aron Jóhannsson frá Haukum
Jóhann Helgi Hannesson frá Þór
Farnir:
Andri Rúnar Bjarnason í Helsingborg
Aron Freyr Róbertsson í Keflavík
Gylfi Örn Á Öfjörð í ÍR
Magnús Björgvinsson í KFG
Milos Zeravica til Borac Banja Luka
Leikmenn Grindavíkur sumarið 2018:
1 Maciej Majewski
12 Kristijan Jajalo
3 Francisco Eduardo Cruz Lemaur
4 Rodrigo Gomez Mateo
5 Aron Jóhannsson
6 Sam Hewson
7 William Franklin Daniels
8 Gunnar Þorsteinsson
9 Matthías Örn Friðriksson
10 Alexander Veigar Þórarinsson
11 Juan Manuel Ortiz Jimenez
13 Jóhann Helgi Hannesson
15 Nemanja Latinovic
18 Jón Ingason
19 Simon Kollerup Smidt
20 Dagur Ingi Gunnarsson Hammer
21 Marínó Axel Helgason
22 Rene Joensen
23 Brynjar Ásgeir Guðmundsson
24 Björn Berg Bryde
26 Sigurjón Rúnarsson
33 Sigurður Bjartur Hallsson
Leikir Grindavíkur 2018:
28.apríl Grindavík – FH
7.maí Keflavík – Grindavík
13.maí Grindavík – KR
18.maí Víkingur R. – Grindavík
22.maí Grindavík – Valur
27.maí Stjarnan – Grindavík
4.júní Grindavík – Fylkir
9.júní Grindavík – Breiðablik
14.júní Fjölnir – Grindavík
1.júlí ÍBV – Grindavík
7.júlí FH – Grindavík
12.júlí Grindavík – KA
23.júlí Grindavík – Keflavík
30.júlí KR – Grindavík
7.ágúst Grindavík – Víkingur R.
13.ágúst Valur – Grindavík
19.ágúst Grindavík – Stjarnan
27.ágúst Fylkir – Grindavík
2.september Breiðablik – Grindavík
16.september Grindavík – Fjölnir
23.september KA – Grindavík
29.september Grindavík – ÍBV
Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafliði Breiðfjörð, Magnús Már Einarsson, Magnús Þór Jónsson og Tryggvi Guðmundsson.