Stjarnan – Grindavík á morgun kl. 16:00 – forsala á Midi.is

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Körfubolti

Þriðji leikur undanúrslitaviðureignar Grindavíkur og Stjörnunnar fer fram í Garðabæ á morgun kl. 16:00. Forsala aðgöngumiða er hafin á Midi.is – Húsið opnar klukkan 15:00 og hleypt verður inn í sal klukkan 15:30. Pizzur og ískalt krap á boðstólum fyrir leik og í hálfleik. Frítt fyrir 15 ára og yngri.

Við hvetjum Grindvíkinga til að fjölmenna í Ásgarð og styðja okkar menn í að klára þessa viðureign í þremur leikjum.
Áfram Grindavík!