Stelpurnar úr leik í bikarnum

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Grindavík er úr leik í bikarkeppni kvenna eftir að hafa tapað fyrir Stjörnunni í 8 liða úrslitum um helgina með 13 stiga mun, 66-53. Bæði lið leika í B-deildinni og því voru nokkur vonbrigði hjá stelpunum að tapa þessum leik.

Leikurinn var í járnum framan af. Stjarnan hafði 3ja stiga forskot eftir 1. leikhluta og 5 stiga forskot í háfleik. Varnarleikurinn var ekki nógu góður hjá okkar stúlkum og þá var skotnýting í 2ja stiga skotunum aðeins 22%

Stig Grindavíkur: Jeanne Lois Sicat 11, Ingibjörg Sigurðardóttir 10, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 9, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 8, Sandra Dögg Guðlaugsdóttir 7, Berglind Anna Magnúsdóttir 4, Mary Jean Sicat 4.