Stelpurnar töpuðu gegn KR í annað sinn

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindavíkurkonur eru komnar í erfiða stöðu í úrslitakeppni 1. deildar eftir tap gegn KR á heimavelli í gær. KR konur eru því komnar í 2-0 í viðureigninni en vinna þarf 3 leiki til að tryggja sér sæti í úrslitum. KR-ingar unnu alla leikina sína í deildina í vetur og eru því enn ósigraðar.

Umfjöllun Víkurfrétta um leikinn í gær:

Grindavík tók á móti KR í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í körfu í kvöld. Grindavík tapaði fyrri viðureign liðanna en KR hefur unnið alla leikina í deildinni í vetur. KR hafði yfirhöndina nánast allan tímann í leiknum og leiddi eftir fyrsta leikhluta 7-22. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 20-44. Sigur KR var aldrei í hættu í kvöld en lokatölur leiksins voru 53-73 og leiðir liðið einvígið með tveimur sigrum gegn engum og ef KR sigrar næsta leik er liðið komið í úrslit, liðin mætast næst þann 29. mars nk. í Frostaskjóli.

Stigahæstu leikmenn Grindavíkur voru,  Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir 19 stig og 9 fráköst, Ólöf Rún Óladóttir 11 stig, 4 fráköst og 5 stolnir boltar, Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir 7 stig, Angela Björg Steingrímsdóttir 6 stig, Anna Margrét Lucic Jónsdóttir 6 stig og Jenný Geirdal Kjartansdóttir 4 stig og 4 fráköst.