Grindavíkurkonur heimsóttu Keflavík um helgina þar sem Keflvíkingar náðu heldur betur að hefna fyrir bikarúrslitaleikinn og unnu nokkuð öruggan sigur 82-54. Á sama tíma unnu Valsstúlkur sinn leik og annað kvöld er því hreinn úrslitaleikur í boði þar sem Valsstúlkur heimsækja Röstina í síðustu umferð deildarinnar. Sigurvegarinn í þeim leik mun væntanlega tryggja sér 4. sætið í deildinni og síðasta sætið í úrslitakeppninni.
Karfan.is fjallaði um leikinn:
„Annan leikinn í röð biðu þær stúlkur í Grindavík afhroð í sínum leik og í þetta skiptið gegn grimmu liði Keflavíkur. Keflavík að endurheimta Carmen Tyson Thomas úr meiðslum hægt og bítandi og virðist hún nú vera að komast í sitt fyrra form eftir rifbeinsbrot. Svo fór að Keflavík flengdu þær gulklæddu úr Grindavík 82:54 og þar með náðu þær að hefna að einhverju leyti fyrir bikarúrslitaleikinn í febrúar.
Strax frá fyrstu mínútu leiksins virtist liggja fyrir í hvað stefndi. Keflavík skoraði fyrstu 5 stig leiksins áður en Grindavík gat svarað og leiddu með 6 stigum eftir fyrsta fjórðung. Það var svo í öðrum fjórðung sem þær Keflvísku gáfu í og skoruðu 24 stig gegn aðeins 9 stigum frá gestunum og forystan orðin 21 stig.
Löng ræða Sverris Þórs Sverrissonar þjálfara Grindavíkur í hálfleik dugði skammt. Sama hálfkák var á leik Grindavíkur í seinni hálfleik og þó svo að hann hafi nú ekki verið líkt slæmur og í öðrum leikhluta en á endanum voru það Keflavíkurstúlkur sem voru töluvert grimmari í öllum sínum aðgerðum og sigruðu verðskuldað með 28 stiga mun.
Það er í raun lítið hægt að segja um hvað sé að gerast með þetta Grindavíkurlið sem hefur á köflum í vetur spilað alveg glimmrandi vel og það sýndu þær í Bikarúrslitaleiknum einmitt. Nú standa þær frammi fyrir því að mæta liði Val heimafyrir í Röstinni á miðvikudag í úrslitaleik um hvort liði komist í úrslitakeppnina. Keflavíkurliðið hinsvegar var að spila vel og óhætt að segja að þær komi til leiks í úrslitakeppnina grimmar og tilbúnar.
Meiðsli voru í herbúðum beggja liða. María Ben Erlingsdóttir spilaði ekki í dag vegna meiðsla og sama var um Ingunn Emblu Kristínardóttir sem fékk högg á sig í síðasta leik liðsins. Birna Valgarðsdóttir var svo heima fyrir og lá flöt fyrir flensu.“