Stelpurnar fyrstar í 8-liða úrslit bikarsins

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavíkurkonur urðu fyrsta lið sumarsins til að tryggja sig í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins þegar þær unnu sameinað lið Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis síðastliðið föstudagskvöld. Meðan flestir Grindvíkingar skemmtu sér í litaskrúðgöngu og brekkusöng á bryggjunni héldu stelpurnar austur á firði þar sem þær unnu góðan 0-4 sigur. Rio Hardy gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu en fjórða mark Grindavíkur var sjálfsmark.

Búið er að draga í 8-liða úrslit og þar mætir Grindavík Valskonum á útivelli 29. júní.