Stelpunum spáð erfiðu sumri

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Knattspyrna

Grindavíkurkonur eiga nokkuð erfitt sumar í vændum ef eitthvað er að marka spá sérfræðinga Fótbolta.net en þeir setja Grindavík í 9. sæti sem þýðir fall úr deildinni. Grindvíkingar voru nýliðar í deildinni í fyrra og komu nokkuð á óvart þar sem liðið endaði í 7. sæti og fór í 4-liða úrslit í bikarnum. Töluverðar breytingar hafa orðið á leikmannahópi liðsins og þá hefur Ray Anthony Jónsson tekið við þjálfun þess að Róberti Haraldssyni. Ray var í viðtalið við Víkurfréttir á dögunum, þar sem hann lagði mikla áherslu á stuðning áhorfenda. Lesa má viðtalið í heild hér.

Umfjöllun Fótbolta.net og spána fyrir sumarið má lesa hér að neðan:

9. Grindavík
Lokastaða í fyrra: 7. sæti í Pepsi-deild kvenna
Grindvíkingar héldu sæti sínu í Pepsi-deild kvenna í fyrra eftir að hafa komið upp árið áður. Þjálfaraskipti hafa orðið hjá Grindavík í vetur og talsverðar breytingar á hópnum.

Þjálfarinn: Ray Anthony Jónsson tók við þjálfun Grindavíkur af Róberti Haraldssyni eftir síðasta tímabil. Ray Anthony spilaði sem bakvörður í liði Grindavíkur í áraraðir en í fyrra þjálfaði hann lið GG í 4. deildinni. Ray spilaði einnig með landsliði Filippseyja á ferli sínum.

Álit Jóa
Jóhann Kristinn Gunnarsson er sérfræðingur Fótbolta.net í Pepsi-deild kvenna líkt og í fyrra. Hér er álit hans á liði Grindavíkur.

Styrkleikar: Hafa oft styrkt sig mikið og fundið nokkra sterka erlenda leikmenn sem lyfta liðinu á hærra plan. Hafa verið skipulagðar og reynt að spila sterkan varnarleik og stungið stærri liðin illa með hröðum skyndisóknum. Ef styrkingin erlendis frá verður úr efri skúffunum þá gætu þær hjálpað kjarnanum sem fyrir er að taka skref upp á við frá í fyrra.

Veikleikar: Sterkir leikmenn hafa yfirgefið liðið og spurning hvernig nýjum og reynslulitlum þjálfara tekst að móta liðið fyrir tímabilið. Úrslitin á undirbúningstímabilinu hafa a.m.k. ekki verið upp á marga fiska.

Lykilleikmenn: Það munaði mikið um Vivian í markinu þegar hún kom til þeirra í fyrra. Hún verður í lykilhlutverki ásamt fyrirliðanum Ísabel Jasmín Almarsdóttur og hinni brasilísku Rilany sem hefur verið að spila með landsliði sínu undanfarið.

Gaman að fylgjast með: Dröfn Einarsdóttur sem hefur þrátt fyrir ungan aldur mikla reynslu í meistaraflokki sem og yngri landsliðum Íslands.

Komnar:
Rio Hardy frá Englandi
Steffi Hardy frá Englandi
Margrét Hulda Þorsteinsdóttir frá Keflavík

Farnar
Sara Hrund Helgadóttir hætt
Emma Higgins í Selfoss
Carolina Mendes til Ítalíu
Thaisa de Moraes Rosa til Brasilíu
Lauren Brennan til Nýja-Sjálands
Guðrún Bentína Frímannsdóttir hætt
Anna Þórunn Guðmunsdóttir hætt

Fyrstu leikir Grindavíkur
5. maí Grindavík – Þór/KA
9. maí Breiðablik – Grindavík
15. maí Grindavík – Valur