Skrifað undir samninga við tíu leikmenn

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Nú á dögunum skrifuðu tíu grindvískir leikmenn undir saminga við meistaraflokk kvenna í körfunni, en allar skrifuðu þær undir tveggja ára samninga. Níu af þessum leikmönnum léku allar með liðinu í fyrra en einn „nýr“ leikmaður skrifaði einnig undir samning, Erna Rún Magnúsdóttir. Erna hefur spilað með Þór á Akureyri undanfarin ár en er flutt heim og komin í gult aftur. Óskum þeim öllum innilega til hamingju og bjóðum Ernu velkomna heim!

Frá vinstri: Arna Sif Elíasdóttir, Halla Emilía Garðarsdóttir, Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir, Erna Rún Magnúsdóttir, Anna Margrét Lucic Jónsdóttir, Ólöf Rún Óladóttir, Andra Björk Gunnarsdóttir, Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir, Angela Björg Steingrímsdóttir og Jenný Geirdal Kjartansdóttir