Skráning stendur nú yfir í knattspyrnuskóla Grindavíkur fyrir sumarið en boðið verður upp á 3 námskeið.
Námskeiðin verða þrjú og skiptast í eftirfarandi tímabil:
3 vikur frá 3. – 20. júní 10.000 krónur
3 vikur frá 1. – 18. júlí 10.000 krónur
2 vikur frá 7. – 21. ágúst 7500 krónur
Skráning fer fram á milos@grindavik.is og á Facebook síðu skólans. Með skráningu þarf að koma fram nafn barns og aldur.
Skólinn er frá mánudegi til fimmtudags.
7. flokkur: 12:30-13:45
6. flokkur: 9:30 – 10:45
4. og 5. flokkur: 14:00 – 15:20
Á facebook heitir skólinn Knattspyrnuskóli Grindavíkur sumarið 2019