Skeytasala sunddeildar UMFG um helgina

Sund Íþróttafréttir, Sund

Fermt verður í Grindavíkurkirkju dagana 25. mars, 8. apríl og 15. apríl næstkomandi, Sunddeild UMFG verður með skeytaþjónustu eins og síðasta ár . Við verðum í Gjánni við íþróttahúsið, Austurvegi, frá kl. 11:00-14:00 alla fermingardagana. Boðið verður uppá símaþjónustu. Þú hringir í síma 426-7775 og við tökum niður pöntunina. 
ATH! Greiðslukortaþjónusta, ekki rukkað í hús. Verð á skeyti er 1.500 kr. óháð orðafjölda.

Gleðjið fermingarbörnin með kveðju og styrkið gott málefni í leiðinni.

 Þú hefur val um eftirfarandi texta:

1.    Hjartanlegar hamingjuóskir á fermingardaginn
2.    Innilegar hamingjuóskir til þín og foreldra þinna. Bjarta framtíð
3.    Bestu fermingar- og framtíðaróskir
4.    Innilegar hamingjuóskir á fermingardaginn. Guð blessi þig

Sunddeild UMFG.