Sjávarréttahlaðborð sunddeildarinnar á föstudaginn

Sund Íþróttafréttir, Sund

Sjávarréttahlaðborð sunddeildar UMFG verður haldið í Gjánni föstudaginn 2. nóvember. Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00. Sunddeildin hefur fengið Láka á Salthúsinu til liðs við sig en hann mun töfra fram dýrindis sjávarrétti úr hafinu umhverfis Grindavík. Forsala fer fram í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar 1. nóvember milli kl. 18:00 – 22:00.

Einnig má nálgast miða með því að hringja í síma 899-3874 eða með því að senda tölvupóst á netfangið sigrunbokari@gmail.com. Miðinn kostar 6000 kr. í forsölu en 6500 kr. við innganginn þann 2. nóvember. Frábærir tónlistarmenn munu koma og skemmta gestum.