Sjáðu fyrsta landsleik Drafnar Einarsdóttur hér

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Eins og við greindum frá á dögunum var Dröfn Einarsdóttir, leikmaður meistaraflokks kvenna í knattspyrnu, valin í U17 ára landslið Íslands sem leikur á æfingamóti í Færeyjum þessa dagana. Dröfn lék sinn fyrsta landsleik í gær þegar Ísland sigraði Wales, 3-1. Dröfn lék allan leikinn og stóð sig að sögn kunnugra vel í stöðu hægri bakvarðar.

Leikinn má sjá í heild sinni hér að neðan. Dröfn leikur í treyju númer 6 og eins og sagði hér að ofan, í stöðu hægri bakvarðar.

Næsti leikur Íslands er gegn N-Írlandi í dag kl. 13:00 að staðartíma.