Grindvíkingar tóku á móti Fylki á heimavelli í gærkvöldi í fimmtu umferð Pepsí Max-deildarinnar. Grindvíkingar unnu 1-0 en markið skoraði Josip Zepa með skalla á 74. mínútu. Það var eftir hornspyrnu frá Aroni Jóhannssyni sem boltinn hafnaði í netinu. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd fögnuðu heimamenn markinu innilega. Með sigrinum er Grindavík komið í 4-6. sæti með 8 stig.
Víkurfréttir voru á svæðinu og tóku myndasyrpu af leiknum sem sjá má hér.
Næsti leikur Grindavíkur í Pepsí Max deidinni fer fram laugardaginn 25. maí í Kópavogi á móti HK.
Mynd: vf.is