Enn kvarnast úr liði Grindavíkur fyrir átökin í úrvalsdeildinni í körfubolta í vetur. Fyrir skömmu var hinn bandaríski leikstjórnandi Brendon Roberson sendur heim og nú er það miðherjinn sterki, Sigurður Þorsteinsson, sem yfirgefur liðið en Sigurður hefur skrifað undir samning við sænska úrvalsdeildarliðið Solna Vikings.
Vistarskipti Sigga eru þó öll á jákvæðu nótunum, þó svo að við Grindvíkingar séum svekktir yfir því að missa hann, en Siggi hefur verið ansi drjúgur fyrir liðið síðustu ár og skilað tvennum í bunkum. Hann skilur eftir sig ansi stórt skarð í teignum, svo nú er spurning hvort að Sverrir setur traustið á unga leikmenn eða hvort næsti Bandaríkjamaður verði yfir miðherji.
Vísir greindi frá félagaskiptunum:
,Miðherjinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson er genginn í raðir sænska körfuboltaliðsins Solna Vikings, en hann hefur leikið með Grindavík undanfarin ár.
Sigurður skrifaði undir eins árs samning við sænska liðið í dag. Hann fylgir þar með í fótspor félaga sinna í íslenska landsliðinu, Loga Gunnarssonar og Helga Más Magnússonar, sem léku með Solna á sínum tíma. Sigurður segir að félagaskiptin hafi ekki átt sér langan aðdraganda.
„Þeir voru búnir að skoða mig í sumar, en síðan kom þetta upp í gærkvöldi og ég fékk samning í hendurnar í morgun,” sagði Sigurður í samtali við Vísi. Hann segir að hann stefnt að þessu í nokkrum tíma.
„Þetta er það sem flestir vilja, að fara eitthvert annað og sjá hvort maður getur eitthvað. Ég hafði komandi landsliðsár líka í huga. Mig langaði að taka næsta skref og það hjálpar mér að undirbúa mig fyrir Evrópumótið á næsta ári,” sagði Sigurður sem heldur utan á morgun eða hinn, en Solna leikur sinn fyrsta leik í sænsku deildinni á sunnudaginn gegn Uppsala Basket.”
Mynd: Visir.is/Valli