Scott Ramsay og Magnús Björgvinsson hafa báðir skrifað undir nýja tveggja ára samninga við Grindavík. Leikmennirnir voru báðir samningslausir en þeir hafa nú ákveðið að taka slaginn með Grindvíkingum í fyrstu deildinni næsta sumar.
Hinn 37 ára gamli Ramsay var í minna hlutverki hjá Grindavík í sumar en oft áður en hann skoraði eitt mark í átján leikjum í Pepsi-deildinni.
Ramsay hefur leikið hér á landi síðan árið 1996 en hann hefur lengst af verið á mála hjá Grindavík.
Magnús skoraði þrjú mörk í fjórtán leikjum í Pepsi-deildinni í sumar en hann var að leika sitt annað tímabil með Grindavík. Þetta kemur fram á fotbolti.net