Sætur sigur á Keflavík og 4. sætið innan seilingar

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindavíkurstúlkur tóku á móti Keflavík síðastliðinn sunnudag og er skemmst frá því að segja að okkar konur lönduðu góðum sigri, 70-79. Sigurinn hefur sennilega verið extra sætur fyrir Sverri og stelpurnar hans enda fyrsti sigurinn á liði úr topp 4 í vetur og þá höfðu Keflvíkingar farið ansi illa með okkur fyrr í vetur.

Rachel Tecca var sem fyrr atkvæðamest Grindvíkinga, skoraði 24 stig og tók 20 fráköst. Þá gaf hún 7 stoðsendingar og varði 3 skot og skilaði 46 framlagsstigum, 30 stigum meira en María Ben sem kom næst með 16.

Næsti leikur Grindavíkur og sá síðasti fyrir jól er útileikur gegn Valsstúlkum á morgun, en Valur situr einmitt í 4. sæti, sætinu fyrir ofan Grindavík, með sama stigafjölda. Sigur í þeim leik myndi því fleyta Grindvík í úrslitakeppnissæti fyrir jólafrí.

Umfjöllun karfan.is:

,,Grindavík sigraði Keflavík í 13. umferð Domino´s deildar kvenna í körfubolta fyrr í kvöld á heimavelli sínum, í Röstinni, með 79 stigum gegn 70.

Leikurinn fór frekar illa af stað fyrir heimamenn, en eftir um 5 mínútna leik voru Keflavíkurstúlkur komnar með 11 stiga forskot á meðan að Grindavík átti enn eftir að skora körfu. Þá tók Grindavík leikhlé og kom mun sterkara til baka inn í leikinn og hafði, þegar leikhlutinn kláraðist, náð að jafna leikinn aftur í 23 stigum á móti 23.

Mikið jafnræði var á með liðunum bæði í 2. og 3. leikhlutanum og fyrir lokaleikhlutan voru það aðeins 3 stig sem skildi liðin að. Það var ekki í raun fyrr en nokkrar mínútur lifðu eftir af leiknum sem að Grindavík náði að slíta sig frá Keflavík. Þær náðu þó að halda það út og unnu leikinn þeim mesta mun sem þær höfðu haft í leiknum, 79 stig gegn 70.

Maður leiksins var leikmaður Grindavíkur, Rachel Tecca, sem skilaði hæstu framlagi allra leikmanna á vellinum, eða 46 stigi, en hún skoraði 24 stig, tók 20 fráköst og gaf 7 stoðsendingar.

Punktar:

Grindavík skutu 55% af gjafalínunni á móti 47% hjá Keflavík.
Grindavík tapaði 20 boltum í leiknum.
3 leikmenn hvors liðs skoruðu 10 stig eða meira í leiknum.
Keflavík tók 47 fráköst, en Grindavík 52.
Grindavík gaf 27 stoðsendingar, en Keflavík 14.

Myndasafn

Tölfræði

Grindavík-Keflavík 79-70 (23-23, 21-18, 17-17, 18-12)

Grindavík: Rachel Tecca 24/20 fráköst/7 stoðsendingar/3 varin skot, María Ben Erlingsdóttir 18, Petrúnella Skúladóttir 13/10 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 7/5 fráköst, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 7, Jeanne Lois Figeroa Sicat 6, Ingibjörg Jakobsdóttir 4, Hrund Skuladóttir 0, Lilja Ósk Sigmarsdóttir 0, Harpa Rakel Hallgrímsdóttir 0, Katrín Ösp Rúnarsdóttir 0, Ásdís Vala Freysdóttir 0.

Keflavík: Carmen Tyson-Thomas 19/11 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 10/6 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 10, Ingunn Embla Kristínardóttir 9, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 7/6 fráköst, Sandra Lind Þrastardóttir 7/8 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 4, Thelma Dís Ágústsdóttir 4, Marín Laufey Davíðsdóttir 0, Lovísa Falsdóttir 0, Irena Sól Jónsdóttir 0, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 0.”