Ray Anthony yfirgefur Grindavík

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir

Bakvörðurinn Ray Anthony Jónsson hefur skrifað undir 2 ára samning við Keflavík sem leikur í Pepsi deild karla í knattspyrnu. Ray sem er 33 ára gamall hefur spilað allan sinn feril í Grindavík en hann á að baki 182 leiki í efstu deild. Hann er einn reynslumesti leikmaður Grindvíkinga frá upphafi.

Ray hefur leikið 29 leiki með landsliði Filippseyja og á að baki leiki með 21 árs landsliði Íslands. Faðir hans er íslenskur en móðir hans frá Filipseyjum sem gerir hann gjaldgengan í landsliðið. 

Mynd: Víkurfréttir.