Lokahóf KKÍ fór fram í hádeginu í dag og voru þar veitt verðlaun til þeirra leikmanna sem sköruðu fram úr vetur. Petrúnella Skúladóttir, leikmaður meistaraflokks kvenna hjá Grindavík, var valin í fimm manna úrvalslið deildarinnar og þá var María Ben einnig á blaði yfir aðra leikmenn sem fengu atkvæði. Við óskum Petrúnellu til hamingju með þessa viðurkenningu en hún var ein af lykilleikmönnum bikarmeistaraliðs Grindavíkur í vetur.
Allar tilefningar og verðlaunahafa má lesa á heimasíðu KKÍ.