Páll Axel setti met í síðasta leik – flestir þristar fyrir sama liðið

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Körfubolti

Stórskyttan Páll Axel Vilbergsson setti skemmtilegt met í síðasta leik Grindavíkur en hann er nú sá leikmaður í sögu úrvalsdeildar karla í körfubolta sem hefur skorað flestar þriggja stiga körfur fyrir sama liðið. Palli setti 4 slíkar í leiknum og er nú búinn að setja 871 fyrir Grindavík, geri aðrir betur! Gamla metið átti keflvíska stórskyttan Guðjón Skúlason, en þetta er í annað skiptið á stuttum tíma sem Palli slær Gaua Skúla við. 

Frétt Vísis um metið:

„Páll Axel Vilbergsson var sjóðheitur í síðasta leik með Grindvíkingum í Domino´s deild karla í körfubolta og þegar betur var að gáð þá náði hann að bæta met í leiknum.

Páll Axel skoraði 18 stig og tæpum 18 mínútum í öruggum sigri Grindvíkinga á ÍR í Seljaskóla en þessi 37 ára frábæri skotmaður hitti úr 7 af 10 skotum sínum í leiknum.

Páll Axel skoraði alls fjórar þriggja stiga körfur í leiknum og er þar með kominn með 871 þriggja stiga körfur fyrir Grindavík í úrvalsdeild karla.

Guðjón Skúlason átti metið yfir flesta þrista fyrir eitt félag en Guðjón skoraði á sínum tíma 867 þriggja stiga körfur fyrir Keflavík í deildarkeppni úrvalsdeildarinnar.

Guðjón átti einnig metið yfir flestar þriggja stiga körfur í sögu úrvalsdeildarinnar (965) en Páll Axel hafði áður bætt það jafnframt því að vera sá fyrsti til að skora þúsund þriggja stiga körfur í efstu deild.

Páll Axel lék sinn 401. leik í úrvalsdeild karla á fimmtudagskvöldið var og hefur nú skorað 1033 þriggja stiga körfur í úrvalsdeild karla.

Páll Axel er að spila sitt fyrsta tímabil með Grindavík síðan 2011-2012 en hann var undanfarin þrjú ár í herbúðum Skallagríms í Borgarnesi.

Í fyrstu þremur leikjum Grindavíkur í Domino´s deildinni hefur Páll Axel skorað 40 stig, 13,3 að meðaltali og skilað 8 þriggja stiga skotum rétta leið í körfuna.

Páll Axel er með 57 prósent þriggja stiga skotnýtingu, 8 af 14, í þessum þremur sigurleikjum Grindvíkinga á móti FSu, Hetti og ÍR.“