Pálína úr leik næstu vikurnar

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir

Pálína María Gunnlaugsdóttir leikmaður Grindavíkurliðsins verður frá vegna meiðsla næstu 8 til12 vikurnar. Pálína er með rofið liðband. Þetta er mikið áfall fyrir Grindavíkurliðið.

„Rofið liðband varð niðurstaðan, hún er ekki úr leik þetta tímabilið og gæti verið klár í kringum mánaðarmótin janúar-febrúar,” sagði Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari Grindavíkur við karfan.is.

Grindvíkingar eru sem stendur í 5. sæti deildarinnar og hefur Pálína gert 17,4 stig, tekið 9,1 frákast og gefið 4,3 stoðsendingar að meðaltali í leik auk þess að vera einn allra besti varnarmaður deildarinnar