Pálína og Petrúnella í 12 manna landsliðshóp fyrir Smáþjóðaleikanna

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Þær Pálína Gunnlaugsdóttir og Petrúnella Skúladóttir verða fulltrúar Grindavíkur í kvennalandsliðinu í körfuknattleik sem keppir á Smáþjóðaleikunum sem haldnir verða hér á landi 1.-6. júní næstkomandi. Þær stöllur eru í hópi leikreyndustu leikmanna liðsins með 28 og 25 A-landsleiki í sarpnum en aðeins 3 leikmenn hafa leikið fleiri leiki en þær.

Þær Ingibjörg Jakobsdóttir og María Ben Erlingsdóttir voru einnig í æfingahópnum en þurftu báðar að draga sig útúr honum. Ingibjörg vegna meiðsla og þá er María barnshafandi.

Karfan.is greindi frá