Ólöf Rún Óladóttir stigahæst í sigri Íslands á Svíþjóð

Ungmennafélag Grindavíkur Íþróttafréttir, Körfubolti

Norðurlandamót yngri landsliða í körfubolta hefur staðið yfir í Finnlandi undanfarna daga en á miðvikudaginn vann U16 lið stúlka góðan 2 stiga sigur á Svíþjóð í miklum spennuleik. Stigahæst íslensku stúlknanna var Grindvíkingurinn Ólöf Rún Óladóttir, en hún setti 23 stig og bætti við 5 fráköstum og 3 stoðsendingum.

Karfan.is tók púlsinn á Ólöfu eftir leik:

Tölfræði leiksins

Myndasafn frá Karfan.is

Umfjöllun um leikinn hjá Karfan.is