Óli Stefán tekur við meistaraflokki karla í knattspyrnu

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Knattspyrna

Í hinum stríða straumi frétta sem streymt hefur fram hér á síðunni síðustu daga er ein stórfrétt sem gleymdist að greina frá en það eru þjálfaraskipti hjá meistaraflokki karla í knattspyrnu hjá Grindavík. Tommy Nielsen hefur lokið störfum fyrir félagið og mun Óli Stefán Flóventsson vera aðalþjálfari liðsins næsta sumar en þeir félagar voru saman með liðið í sumar. Reynsluboltinn Milan Stefán Jankovic verður honum til aðstoðar. 

Fótbolti.net greindi frá:

Tommy Nielsen verður ekki áfram þjálfari Grindvíkinga á næsta tímabili en Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar, staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.

Tommy var með eins árs samning við Grindvíkinga og ákveðið hefur verið að framlengja hann ekki.

„Það er mikil eftirsjá í Tommy. Ég var mjög ánægður með hann og handbragð hans var faglegt,” sagði Jónas við Fótbolta.net í dag.

Óli Stefán Flóventsson, sem var aðstoðarþjálfari í sumar, tekur við Grindvíkingum sem aðalþjálfari. Óli var ráðinn aðstoðarþjálfari í fyrrahaust, á sama tíma og Tommy tók við sem þjálfari.

Óli Stefán spilaði með Grindavík í mörg ár á sínum tíma en hann þjálfaði síðan Sindra á Höfn í Hornafirði.

Aðstoðarþjálfari með Óla Stefáni verður Milan Stefán Jankovic. Janko þjálfaði meistaraflokk Grindavíkur um áraraðir og er öllum hnútum kunnugur eftir að hafa verið bæði sem leikmaður og þjálfari í Grindavík frá árinu 1992.

Grindavík endaði í 5. sæti í 1. deildinni í sumar með 36 stig en liðið sigldi lygnan sjó um miðja deild nánast allt tímabilið.

Viðtal við Óla á Fótbolta.net