Ólafur Ólafsson snýr heim á ný

Ungmennafélag GrindavíkurÍþróttafréttir, Körfubolti

Grindvík hefur borist vænn liðstyrkur fyrir komandi vetur í körfunni en Ólafur Ólafsson skrifaði í dag undir samning við liðið. Ólafur er uppalinn Grindvíkingur og var einn allra besti leikmaður liðsins tímabilið 2014-2015 en hann hélt í víking síðastliðið haust og lék með St Clement í Frakklandi í vetur. Ólafur er þekkt stærð hérna á Íslandi og ljóst að hann mun styrkja liðið til muna. Við erum gríðarlega ánægð og hlökkum til samstarfsins.

Stjórn KKD.UMFG

 

Karfan.is gerði vistarskiptum Ólafs einnig góð skil:

Ólafur Ólafsson sem ól mann sinn í Frakklandi síðasta vetur hefur ákveðið að snúa í heimahaga og spila með Grindvíkingum næsta vetur en kvittað var undir samninga þess efnis nú í hádeginu. Ólafur spilaði með St. Clement í NM2 deildinni í Frakklandi síðasta tímabilið við góðan orðstýr. Clement lentu í 5. sæti deildarinnar og Ólafur skilaði að meðaltali til liðsins 14 stigum, tæpum 6 fráköstum og um 3 stolnum og stoðsendingum í leik.

Í Ólafi eru Grindvíkinar ekki bara að endurheimta einn af sínum dáðustu drengjum heldur baráttujaxl í anda við bræður sína þá Jóhann sem þjálfar liðið og Þorleif sem hyggst spila sitt síðasta tímabil. Ólafur var drjúgur fyrir þá gulklæddu áður en hann fór til Frakklands en hann var að skora um 15 stig á leik og taka 7 fráköst ásamt því að senda um 3 stoðsendingar.

“Grindvíkingar höfðu samband við mig og buðu mér að koma heim og spila. Við konan fórum vel og vandlega yfir þetta og spjölluðum lengi áður en ákvörðun var tekin. Konan komst svo inn í Háskólanám sem spilar stórt inní ákvörðun mína sem og að bræður mínir. Jóhann er náttúrlega að þjálfa og hefur kennt mér gríðarlega mikið og ég sé fyrir mér að hann eigi eftir að halda því áfram. Í kjölfarið sagðist miðju bróðirinn (Þorleifur Ólafsson) taka sitt síðasta tímabil með mér. Þeir eru búnir að hjálpa mér rosalega mikið í gegnum minn feril og ég ákvað því að koma heim og spila bæði fyrir og með þeim.” sagði Ólafur í snörpu viðtali nú í hádeginu.